Formleg vígsla Vaðlaheiðarganga 12. janúar

Laugardaginn 12. janúar nk. verða Vaðlaheiðargöng opnuð með formlegum hætti og verður viðamikil dagskrá allan daginn af því tilefni. Allir eru hjartanlega velkomnir. Vaðlaheiðargöng verða lokuð fyrir umferð vegna opnunarhátíðarinnar frá kl. 08:00 - 18:00 laugardaginn 12. janúar.

Nýársmót Hjólreiðafélags Akureryrar
Kl. 09:30  Nýársmót Hjólreiðafélags Akureyrar – HFA í göngunum.
Skráning og allar nánari upplýsingar á fb-síðu HFA – Nýársmót HFA.

Á hjólaskíðum í gegnum göngin
Kl. 11:15 / 11:30  Gönguskíðamenn í skíðagöngudeild Skíðafélags Akureyrar fara á hjólaskíðum í gegnum göngin.
Rútuferð frá verslunarmiðstöðinni Glerártorgi kl. 10:50 fyrir þá sem það vilja.
Ræsing kl. 11:15 í 15 km við gangamunnann Eyjafjarðarmegin (fram og til baka) og í 7,5 km kl. 11:30 við gangamunnann Fnjóskadalsmegin (skíðað að gangamunnanum Eyjafjarðarmegin).

Opin hlaupaæfing
Kl. 11:30  Opin hlaupaæfing í göngunum á vegum hlaupahópsins UFA-Eyrarskokks á Akureyri. Öllum velkomið að taka þátt, fólk skokkar/gengur á sínum hraða.
Sjá nánar á fb-síðunni Hlaupum gegnum göngin.
Rúta fyrir hlaupara/göngufólk leggur af stað frá verslunarmiðstöðinni Glerártorgi kl. 10:50.

Opið hús í Gamla barnaskólanum á Skógum
Kl. 12:00 – 17:00  Opið hús í Gamla barnaskólanum á Skógum í Fnjóskadal. Gamli Bjarmasalurinn verður til sýnis, einnig gamlar ljósmyndir, fróðleikur um barnaskólann, starfsemi hússins o.fl. Heitt á könnunni.

Opinn kynningardagur
Kl. 13:00 – 15:00  Opinn kynningardagur í Vaðlaheiðargöngum. Rölt um göngin, hjólað eða ekið milli  staða í metanstrætó.
Sýning um framkvæmd ganganna og kynning á vegum Norðurorku á heitu og köldu vatni í göngunum.
Klukkan 13 til 14 býður World Class upp á alvöru líkamsrækt fyrir þá sem vilja taka á því. Fólk mæti léttklætt með handklæði og vatnsbrúsa.
N3 plötusnúðar taka á móti gestum, fulltrúi Vaðlaheiðarganga hf. býður fólk velkomið og tónlist flutt af Söngfélaginu Sálubót, Kristjáni Edelstein, Andra Snæ (harmonika) og Þórhalli (saxófónn), akureyrsku hljómsveitinni Angurværð og Marimbasveit Þingeyjarskóla.

Formleg vígsla ganganna við gangamunnann Fnjóskadalsmegin
Kl. 15:00 Tónlistarflutningur Vandræðaskáldanna Vilhjálms B. Bragasonar og Sesselíu Ólafsdóttur.
Kl. 15:30 Hilmar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga hf., ávarpar gesti og býður þá velkomna.
Kl. 15:35 Vandráðaskáld frumflytja lag um Vaðlaheiðargöng.
Kl. 15:40 Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, flytur ávarp fyrir hönd hluthafa / Greiðrar leiðar.
Kl. 15:45 Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, flytur ávarp fyrir hönd hluthafa / íslenska ríkisins (í fjarveru Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra).
Kl. 15:50 Friðrik Ómar Hjörleifsson syngur Vor í Vaglaskógi
Kl. 15:55 Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar flytur ávarp.
Kl. 16:00 Hilmar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga hf., flytur ávarp.
Kl. 16:05 Borðaklipping. Um hana sjá tveir eldri borgarar sem búsettir eru í sveitarfélögunum beggja vegna Vaðlaheiðar: Hólmfríður Ásgeirsdóttir (f. 1927) á Hallandi á Svalbarðsströnd og Friðrik Glúmsson í Vallakoti í Þingeyjarsveit (elsti íbúi Þingeyjarsveitar – f. 1919). Þeim til aðstoðar verða Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri í Svalbarðsstrandarhreppi, og Dagbjört Jónsdóttir, sveitarstjóri í Þingeyjarsveit. „Skærahaldarar“ verða Emelía Bergmann Valgeirsdóttir, Ragnhildur Edda Ágústsdóttir og Bryndís Eva Ágústsdóttir.

Að formlegri vígslu lokinni munu félagar í fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar aka fyrstir í vesturátt í gegnum göngin.

Kaffisamsæti í Valsárskóla
Kl. 15:00 – 18:00  Kaffisamsæti í Valsárskóla á Svalbarðsströnd. Öllum er boðið í kaffi og meðlæti á meðan húsrúm leyfir. Myndasýning, ávörp og skemmtiatriði.

Rútuferðir
Vegna takmarkaðs fjölda bílastæða við Vaðlaheiðargöng verður boðið upp á rútuferðir frá verslunarmiðstöðinni Glerártorgi á Akureyri og Valsárskóla á Svalbarðsströnd í göngin og til baka á hálftíma fresti. Fyrsta ferð frá Glerártorgi kl. 12:30 og Valsárskóla á Svalbarðsströnd kl 13:00. Rútuferðir á hálftíma fresti frá Valsárskóla til Akureyrar meðan á kaffisamsæti stendur, fyrsta ferð kl. 15:30, sú síðasta kl. 18:00.

Rúta frá Akureyri fer frá strætóstöð norðan við verslunarmiðstöðina Glerártorg.

Rútuferðir fyrir hlaupara og keppendur - Glerártorg - Vaðlaheiðargöng - Glerártorg:
Glerártorg - Vaðlaheiðargöng kl. 10:50
Vaðlaheiðargöng - Glerártorg kl. 12:30

Rútuferðir Glerártorg - Vaðlaheiðargöng - Glerártorg fyrir opinn dag:
Glerártorg - Vaðlaheiðargöng kl. 12:30
Vaðlaheiðargöng - Glerártorg kl. 13:00
Glerártorg - Vaðlaheiðargöng kl. 13:00
Vaðlaheiðargöng - Glerártorg kl. 13:30
Glerártorg - Vaðlaheiðargöng kl. 13:30
Vaðlaheiðargöng - Glerártorg kl. 14:00
Glerártorg - Vaðlaheiðargöng kl. 14:00
Vaðlaheiðargöng - Glerártorg kl. 14:30
Glerártorg - Vaðlaheiðargöng kl. 14:30
Vaðlaheiðargöng - Glerártorg kl. 15:00

Rútuferðir frá Valsárskóla í göngin:
Valsárskóli - Vaðlaheiðargöng kl. 13:00
Vaðlaheiðargöng - Valsárskóli kl. 13:15
Valsárskóli - Vaðlaheiðargöng kl. 13:30
Vaðlaheiðargöng - Valsárskóli kl. 13:45
Valsárskóli - Vaðlaheiðargöng kl. 14:00
Vaðlaheiðargöng - Valsárskóli kl. 14:15
Valsárskóli - Vaðlaheiðargöng kl. 14:15
Vaðlaheiðargöng - Valsárskóli kl. 14:30

Rútuferðir frá Valsárskóla (kaffisamsætinu) til Akureyrar:
Valsárskóli - Glerártorg kl. 15:30
Valsárskóli - Glerártorg kl. 16:00
Valsárskóli - Glerártorg kl. 16:30
Valsárskóli - Glerártorg kl. 17:00
Valsárskóli - Glerártorg kl. 17:30
Valsárskóli - Glerártorg kl. 18:00

Metanstrætó verður á ferðinni í göngunum og ekur fólki að vatnsbóli og á það svæði í göngum þar sem hlýjast er, rúmlega 20°C.  Þar geta gestir skoðað nýtt vatnsból Akureyringa og fundið fyrir hitanum á gangaveggjum sem kemur frá heita vatninu í berginu. 
Metanstrætó tekur við farþegum við hringtorgið hjá göngunum og eru gestir beðnir að gæta fyllstu varúðar vegna umferðar sem hlýst af tilfærslu fólks úr rútu yfir í metanstrætó.