Frá og með 2. janúar 2025 mun ný verðskrá taka gildi fyrir veggjöld í Vaðlaheiðargöngum. Veggjalds hækkunin nemur 6% á alla greiðsluflokka og er í samræmi við almenna verðlagsþróun á síðasta ári eins og kveðið er á um í lánasamningi. Boðið verður upp á þá nýjung að bjóða til reynslu árgjald gegn staðgreiðslu óháð umferð en nú þegar er boðið upp á mánaðargjald fyrir fast ökutæki.
Ef veggjaldið er ekki greitt í gegnum greiðslusíðuna www.veggjald.is innan 24 klst. leggst vangreiðslugjald að upphæð 1.490 kr. ofan á veggjaldið. Uppfært verðskrá verður birt á heimasíðu Vaðlaheiðarganga og greiðslusíðunni www.veggjald.is
Hægt er að smella hér til að skoða betur.