23.12.2013
Vaðlaheiðargöng sendir bestu óskir um gleðilega jólahátíð og færsæld á komandi ári við hvetjum fólk til að fylgjast með færð og veðri t.d. með farsímavef vegagerðarinnar m.vegagerdin.is
Akið varlega og eftir aðstæðum !
Takk fyrir árið sem er að líða !
23.12.2013
Nú er sprengingum lokið í bili og fær verktaki um 2 vikna kærkomið jólafrí enda er verktaki búinn að standa sig vel og er verkið um 6 vikur á undan áætlun. Nú er lokið við að sprengja 1.371 metra frá Eyjafirði sem gerir um 55 metra á viku að meðaltali. Berggæði hafa almennt verið góð og lítið vatn að trufla gangagröft.
23.12.2013
Við sprengingar í Vaðlaheiðargöngum hefur komið í ljós hringlöguð hola í berginu í um 300 metra fyrir neðan yfirborð. Um er að ræða far eftir trjábol sem tilheyrt hefur skóglendi þar sem glóandi hraun hefur runnið yfir í eldsumbrotum fyrir 4-12 miljón árum.
19.12.2013
Við hjá Vaðlaheiðargöngum viljum koma á framfæri að Vegagerðin er með farsímavef m.vegagerdin.is sem sýnir nýjustu upplýsingar um færð og veður á vegum ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum. Akið varlega og ekki skoða símann undir stýri.
09.12.2013
Hér má sjá myndir frá Barböruhátíð Ósafls þann 4.desember 2013.
Myndað fyrir Vaðlaheiðargöng/Valgeir Bergmann
04.12.2013
Verndardýrlingur jarðgangamanna skv. kaþólskri trú er heilög Barbara og er fæðingardagur hennar 4.desember, að því tilefni heldur Ósafl svokallaða Barböruhátíð henni til heiðurs. Styttu með líkneski af Barböru hefur verið komið fyrir í læstum skáp við gangamunna og mun hún vaka yfir og vernda þá sem vinna í göngunum.